Samsæriskenningar Óskarssonar...
Myndir
18.03.2007 14:48:19 / stos

Heimsins best ísbúð?


Ísbúðin í vesturbænum. Þarna höfum við mynd af verðlagningunni í ísbúðinni. Á myndinni er maður sem sökum holdafars ætti ekki að eyða miklum tíma né orku í að fara í þessa ágætu verslun.

Það getur verið erfitt að velja þegar kemur að því að versla í þessari frábæru ísbúð. Margir vöruliðir í boði og allir frábærir, svo mikið er víst. Ég á vin sem fer reglulega þangað. Hann lendir alltaf í því að verða fullgráðugur þegar hann kemur þarna inn. Svo mikil er græðgin að hún yfirtekur gáfurnar. Ég vil að gefnu tilefni benda á að þessi saga á ekki við um einstaklinginn á myndinni. Svo ég haldi áfram, þá kaupir þessi ágæti drengur sér alltaf það sama sem er ís í brauðformi, miðstærð, gamli ísinn og svo súkkulaði shake, miðstærð. Það sem hann gleymir alltaf að athuga er að hann á eftir að lenda í bölvuðu veseni skömmu eftir að hann fær varninginn í hendurnar. Þegar hann kemur að bílnum sínum skapast virkilegt vandamál. Aðfarir mannsins við að ná í lyklana úr vasanum og komast inn í bílinn með ís í brauði í annarri og shakinn í hinni eru oft skrautlegar. Alltaf sama vesenið, báðar hendur fullar og hann stendur við bílhurðina og blótar því í sand og ösku að hann hafi keypt svo mikið að hann geti ekki opnað bílinn. Þetta væri ekki fyndið nema hvað að ég er búinn að horfa upp á þetta gerast eins og 10 sinnum. Sama rútína endursýnd.

Maður lendir nú reyndar oft í því sjálfur að verða fullgráðugur þarna. Það lýsir sér yfirleitt þannig að ég hef farið þarna allt að 4 sinnum í viku sem er án efa yfir meðallagi. Einnig má flokka það undir mikla græðgi að leggja það á sig að fara í 30 manna röð í -6°C frosti og röðin svo löng að maður bíður úti til að byrja með í amk 15 mín. En það er allt þess virði þegar maður er kominn með ísinn í hendurnar;).

Ég var búinn að halda því fram hvar sem ég kom að ísinn úr ísbúð vesturbæjar væri besti ís sem fyrirfyndist á jörðinni. Sú skoðun tók stefnubreytingu eftir að ég bragðaði Häagen-Dazs út í Mexico. (http://www.haagen-dazs.de/) ÉG legg málið í dóm lesenda. Hver er besti ísinn?

 

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 14:22:08 / stos

Rauðvín í læknisfræðilegum tilgangi!!

Ótrúlegur vinnustaður sem ég vinn á (www.vgkhonnun.is). Í hádeginu var boðið upp á lambasteik, alveg massagóða með brúnuðum kartöflum og brúnni sósu. Eðal. Með að drekka var rauðvín fyrir þá sem vildu og svo auðvitað ís á eftir. Þetta er alvöru. Ég fékk mér nú hálft glas af rauðvíni enda rauðvín sagt alveg einstaklega holt fyrir líkamann. Þá sérstaklega blóðrásina, hjartað og talið vinna gegn kransæðarsjúkdómum. Einnig hefur það andoxunaráhrif. Þetta er eina ástæðan fyrir að ég fékk mér þetta hálfa glas :lol: Svo hefur einnig verið bennt á að rauðvín geti tímabundið lyft þunglyndissjúklingum upp, allavegna eins og eina kvöldstund ;).

Fór í sund í morgun að vana. Í pottunum eru misgáfulegar umræður í gangi. Stundum eru gamlir skarfar sem eru búnir að sigla öll heimsins höf að ausa úr viskubrunnum sínum, sem er oft virkilega gaman að hlusta á. Í annan tíma eru eldri konur að hafa áhyggjur af því hvernig þær eigi nú að fara að þar sem þær hafi verið að kaupa nýtt sjónvarp og þær komi ekki batterý-unum í fjarstýringuna og þær verði að fara aftur í búðina til að láta græja þetta. Þessu fylgja miklar áhyggjur og verkkvíði. Úff hvað ég ætla að vona að ég verði ekki svona ósjálfbjarga gamalmenni. Í morgun voru menn að setja út á íslenska dómskerfið. Það var ungur strákur um 25 ára. Sagðist eiga vina sem hafði verið tekinn fyrir að smygla inn smá magni af kókaíni. Sá hafi fengið 3 ár fyrir og taldi vinurinn hann hafa verið heppinn með svo stuttan dóm. Nú væru liðnir 2 mánuðir og hann ekki enn farinn að afplána dóminn, en hann væri gjörsamlega búinn að snúa við blaðinu og hættur öllu rugli. "ha! hættur öllu rugli og ekkert tekið tillit til þess". Over all tattóveraði vinur hans virtist mjög argur yfir því hversu óskýr lögin væru. " 1-10 ár fyrir að flytja inn 1 gramm af kókaíni og svo 1-10 ár fyrir að vera með 1 kg af sama efni upp í rassgatinu. Það er ekkert vit í þessu". Ég hafði þá félaga nú sterklega grunaða um að vera eitthvað tengda þessum bransa sjálfa. Já menn voru ekki á eitt sáttir við lögin þar. Kosningarnar bar á góma. Eldri maður sagði "Jón Sigurðsson er bestur"..." Ég er grænn í gegn" og benti á grænt sund armband sem hann var með. Í sömu andrá fór hann að benda á hvað Framsóknarflokkurinn væri magnaður. Þá fannst mér kominn tími til að fara upp úr. Enda þótt ég hafi ekkert tekið þátt í umræðunni þarna í pottinum get ég bara ekki hlustað á nokkurn mann tala fallega um framsóknarflokkinn, enda hlýtur slíkt umtal í öllum tilfellum að vera lygi.

Annars er næst síðasta umferð í Föstudagsrokkinu í dag. Þeir Hafþór Theodórsson og Þorsteinn Hermannsson verkfræðingur berjarst um verðlaunin þar. Eftir næsta föstudag byrjar síðan ný keppni sem stendur í 10 vikur. Þá hvet ég nýja menn til að koma sterka inn.

Helgin, hvað ætlar fólk að gera sniðugt um helgina? Ætli ég fái enn eina helgina símtal frá Ara Björnssyni þar sem hann reynir að draga mig út í óregluna?

kv stos

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 14:09:59 / stos

Sakfelldur að venju..

Ég fékk athyglisvert símtal í gær. Þar var á ferð Lögfræðineminn, ræðuskörungurinn og blankasti maður í heimi, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson yngri. Hann byrjaði á því að óska mér til hamingju með þetta. Ég kom gersamlega af fjöllum. Hann hélt áfram að fiska mig. "Góður brandari hjá þér"... ég sagði við hann að það væri greinilegt að hann væri að sakfella mig fyrir eitthvað og ég vildi vita hvað það væri undir eins. Villi fór yfir málsatvik með mér. Þá hafði einhver óprúttinn náungi hengt upp póstera með myndum af honum í A3 stærð í Lögbergi og Bókhlöðunni. Reyndar sagði Hjalti Einarsson mér það í gærkvöldi að hann hafi séð það inni í Odda að Villi væri í framboði og var þá að vísa í að hann hafi séð plakatið þar. Ég leiðrétti það að sjálfsögðu og sagði að það virtist vera sem svo að einhver væri að hrekkja Villa. En það er önnur saga. Á Plakatinu góða stóð að Villi væri í framboði til formanns Orators sem er nemendafélag lögfræðinema. Það skemmtilega við það er að það er ekki nærri því komið að því að fólk gefi kost á sér í það embætti eða önnur og alls ekki venja ða fólk hendi upp pósterum. Ekki nóg með það heldur hafði Villa tekist við eitthvað tækifæri að láta ná mynd af sér í sleik við einhverja stelpu. Sú mynd er víst á plakatinu og sagði Hjalti Einarsson mér það að fyrir neðan þá mynd hefði staðið eitthvað á þessa leið: " Eins og sjá má er ég virkur í félagslífinu". Þetta þótti okkur mjög fyndið, en að sama skapi Villa ekki. Það er um að gera að flagga því að maður sé duglegur að fara í sleik við hinar og þessar dömur, frábært kosningatrix. Gott grín þar á ferð. Að sjálfsögðu var mér kennt um það. Virðist oft á tíðum vera eini maðurinn á landinu sem er fær um að framkvæma hrekki.

Gaman að segja frá því að eftir að hafa fengið álagsbrot í ristina og misst af öllum mótum vetrarins er komin hreyfing á hlutina. Svo virðist sem brotið sé að mestu gróið, þó að alger lágmarksbatatími sé frá broti. Því er ég farinn að skokka aftur sem er ánægjulegt og ég í raun búinn að bíða ensi lengi eftir þar sem ég var orðinn trúlofaður þrekhjóli inn í Laugardalshöll. Ég gat í raun ekki beðið eftir að rifta þeirri trúlofun og snúa mér að hlaupunum..

Topp 10 playlistinn hjá mér þessa dagana:

1. Jeff Buckley - Lover you should have come over; 2. Arcade Fire - Tunnels; 3. Sigurrós - untitled 5; 4. Kasabian - Club foot; 5. Atmosphere - Fuck you Lucy; 6. Elliot Smith - Oh well, ok; 7. Arcade fire - no cars go; 8. Junior Boys - Double shadow; 9. Beck - Lonesome tears; 10. Nick Cave - The mercy seat.

 

Ef einhver hefur áhuga á að vera með í "Föstudagsrokkinu", tónlistargetraun sem send er út á föstudögum, þá endilega sendið mér mail á erluson@gmail.com.

Kv stos


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 07:18:06 / stos

Verslunarmannahelgin

Jæja ágæta fólk. Nú er komið að hinum árlega viðburði, hinni löngu og sívinsælu helgi verlsunarmannahelgi. Vikan fyrir þessa helgi er að vana söluhæsta vika ársins í vínbúðum landsins. Landsmenn þeytast hingað og þangað um landið og innbrot á höfuðborgarsvæðinu eru aldrei fleiri í kjölfar þess. Nú er komið að því hjá mér eins og öðrum að ákveða hvað skuli gera þessa ágætu helgi. Mikil pressa er á mann að fara í út í Eyjar og er það vissulega freystandi kostur. Lundi verkstjóri ((a.k.a Jón Þór Klemensson) a.k.a armstrong, sökum þess hve hann hjólar mikið í vinnuna) verður á staðnum, auk fjölda annara vina. Þjóðhátíðin klikkar aldrei og verður sá möguleiki sterklega skoðaður. Annars er í boði að fara austur á hérað með Möllu, Ara og einhverju fleira fólki, skella sér í suðursveitina sem er ávallt magnað nú eða það sem hljómar sýst spennandi, þ.e. að vera í borginni. Þeir sem geta hjálpað mér með þetta val og helst leyst það fyrir mig eru snillar. Annars er það að frétta að við Guðmundur Karl brugðum á leik á dögunum. Félagi okkar Bergur Dan (a.k.a Frómasinn þar sem hann er talinn hafa frómas í hausnum) var á leiðinni á deit. Við hringdum í hann og pumpuðum hann um þetta en hann vildi lítið sem ekkert gefa upp, enda treystir maðurinn okkur ekki fyrir 5 aura. Við fengum á endanum upp úr honum (frómasinn) að hann ætti von á dömunni heim til sín. Við vippuðum okkur í málið. Við fórum í búð og keyptum dollu af vaseline og keyrðum að húsi sem er nálægt heimili bergs. Við fylgdumst síðan með þegar daman kom keyrandi heim til Bergs og fór inn til hans. Þegar hún var farinn inn rukum við að bílnum og mökuðum vaseline í óeðlilegu magni undir báða framhurðurhúnana hjá stelpu greyjinu. Við áttum í raun von á að þau færu í einhvern bíltúr, ísrúnt eða eitthvað slíkt. En sú varð víst ekki raunin. Við biðum átekta í rúmlega 30 min og ætluðum að sjá þau grípa í húnana og verða hreynt óð og þurfa að fara aftur inn til að þrífa það af, en þau komu ekki út. En vaseline-ið var á sínum stað og beið þess að sína virkni sína.:klikk: Vonast til að heyra meira af þessu máli fljótlega.

Ég mæli með að fólk downloadi disknum \"funeral\" með hljómsveitinni Arcade fire og hlusti hann upp til agna.

Svo má fara á þessa slóð:

http://youtube.com/results?search=200m+wr&search_type=search_videos&search=Search

Þá kemur upp myndband þar sem Michael Johnson setur heimsmet í 200m hlaupi. Fallegra gerist það varla..


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 18:22:04 / stos

Síðan endurræst

 Það hefur oft þótt við hæfi að menn sem eru í sviðsljósinu á ýmsum sviðum hérlendis til lengri tíma taki sér pásu áður þeir brenni út. Mæta svo til leiks aftur, þá endurnærðir. Þetta hafa margir gert. Menn eins og Hemmi Gunn, Jón Baldvin Hannibalsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Bubbi Morthens og margir fleiri. Það má vel hugsa sér sem svo að það sama hafi gerst fyrir blogferil minn, þar sem hugsanleg upprisa sé í deiglunni.

Ýmislegt hefur drifið á mína daga síðan ég setti inn færslu síðast. Ég byrjaði í nýrri vinnu, fór í 2 utanlandsferðir, bætti mig í 100m og 200m og  skellti mér til Vestmannaeyja sem gerist ekki á hverjum degi. Auk þess varð ég þáttakandi í stofnum spilaklúbbs sem sérhæfir sig í að spila hið stórskemtilega spil Fimbulfamb. Meðlimir klúbbsins eru nokkurskonar landslið lúmskra manna og verð ég að segja að keppnin er hörð. Hópinn skipa Ari Tómasson (verkfræðinemi og starfsmaður Strams ehf.), Árni Helgason (lögfræðinemi og blaðamaður á mogganum), Vilhjálmur Þ.Vilhjálmsson (Lögfræðinemi og starfsmaður á Hafró, reyndar held ég því statt og stöðugt fram við mann og annan að hann sé kjötiðnaðarmaður og sé starfsmaður kjötvinnslu borgarfjarðar og nágrennis, en það er önnur saga), Jóhanna (blaðamaður á fréttablaðinu), Ari Björnsson (Verkfræðingur b.sc og starfsmaður á hugbúnaðarfyrirtæki) og Sigga Dóra (blaðamaður á fréttablaðinu og nemi í stjórnmálafræði). Auk þeirra er verið að skoða inntöku annarra meðlima en eftirspurnin eftir sæti í klúbbnum er mjög mikil og valið erfitt þar sem margir hæfir einstaklingar koma til greina. En það er allavegna ljóst að þær hugmyndir sem koma fram hér á spilakvöldum eru langt frá því að vera eðlilegar og er mikið hlegið, enda hugmyndaflug þessara einstaklinga alveg magnað.

Í gær var ég staddur í afmæli hjá þeim Ara og Möllu. Þau buðu upp á miklar kræsingar, m.a. heita rétti. Eftir að heitu réttirnir voru komnir í ofninn fékk ég alveg hreint prýðis hugmynd. Ég talaði við Hjört félaga minn sem var staddur þarna og bað hann um að taka réttina úr ofninum og fela þá. Á meðan villti ég um fyrir húsráðanda með óteljandi spurningum um ekki neitt í hinu horni íbúðarinnar. Þegar ég fékk merki frá drengnum um að réttirnir væru farnir út úr ofninum og komnir á góðan stað hætti ég að spjalla við hana í bili. Það næsta sem ég veit er að hún fer að kanna með réttina og kemur sér til undrunar að tómum ofninum. Malla tekur tryllingin og sakar Róbert frænda Ara um verknaðinn. Þarna var mér skemmt og ég hló mig máttlausan út í horni...

Later

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:02:34 / stos

Djarfir óþokkar

Hátt hreykir heimskur sér. Þetta orðatiltæki á einstaklega vel við um nokkra einstaklinga sem ég þekki. Nefnum engin nöfn í bili. Slíkir einstaklingar halda að sólinn komi upp á morgnanna bara fyrir þær sakir að þeir séu til. Einn einstaklingur sem er af þessu kyni er góðvinur minn, og við skulum reyna tryggja nafnleynd hans. Maðurinn á aðeins eitt mannorð og ég vill síður skemma það fyrir honum á unga aldri. Þessi ágæti drengur hefur svoleiðs margsinnis komið sér í þá stöðu að ógna lífi sínu og limum með því að reyna að hræra í mér á einn eða annan hátt. Hann væri a.m.k í lífshættu ef hann þyrfti ekki endilega að vera 2 metra tröllabarn. Maðurinn sem um ræðir sendi mér sms á dögunum nafnlaust af netinu. Í því stóð: “ hringdu í mig strax ég þarf að ná í þig, kv Páll s:535-9988.” Ég er ekki vanur að láta menn bíða lengi eftir mér svo ég snaraði mér í að hringja í þennan Pál. Þá fékk ég á línuna símsvara sem sagði: “velkomin á hommalínu símatorgsins....” meira heyrði ég ekki enda hef ég ekki nokkurn einasta áhuga á því, dúndraði bara á rauða takkann. Svona hluti tekur maður og setur í hólf í heilanum sem heldur utan um skuldunauta. Þar verður þetta síðan þangað til ég hef náð hefndum. Þrátt fyrir það að hefnd sé yfirvofandi af minni hendi verð ég nú að segja að þessi hrekkur var stórgóður í alla staði, vel heppnaður með eindæmum og vel skipulagður. Það má draga lærdóm af honum, t.d. hringdu aldrei til baka ef páll biður þig um það í sms-i.

Annars eru 16 dagar í Spán og 68 í Mexikó. Menn eru búnir að opna veðbanka um það hvort maður komi heim brúnni eða hvítari en ég var fyrir. Það hefur nebbla ekki þótt mín sterkasta grein að liggja í sólbaði...


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 11:13:50 / stos

Að þekkja sína menn!!

Þessi mikla og óvænta athygli sem ég hef fengið eftir að hafa verið hálf snoðaður af ágætum hárskera S.Diego er farin að minna á þá miklu athygli sem sjálfur Beckham fær í hvert skipti sem hann gegnur út af hárgreiðslustofu. Heilu hjarðirnar af unglingsdrengjum láta þá klippa sig eins og kappinn. Ég á þó ekki von á að slíkt gerist í mínu tilfelli þar sem þessi athygli er ekki komin til af góðu. Þeir Jón Þór Klemensson og Hafþór Teodórsson hafa hreinlega keppst við að kommenta í nafni annara um ágæti klippingarinnar.

Það er svosem ágætt að þessir drengir eyði sínum dýrmæta tíma í að reyna að koma höggi á mig. Þessar færslur eru allar í kredit hjá strákunum og fer ég því að eiga ansi mikið inni á þá drengi. Kannski springur airbag-ið út hjá Hafþóri honum að óvörum, þegar hann er að keyra Miklubrautina í mestu makindum í föstudagstraffík. Hver veit. Svipbrigðin á drengnum yrðu hreint ólýsanleg.

Varðandi klippingar. Það eru fleiri einstaklingar sem eiga skilið að fá mikla athygli út á hairdo-ið. Hér er t.d.mynd af Hafþóri Teodórssyni nýkomnum úr klippingu á Hárgreiðslustofunni Klapparstíg sem hann borgaði heilar 3500kr fyrir. Við sjáum að Hafþór er mikill smekkmaður þegar hár er annarsvegar. Þetta var sumarklippingin í fyrra og eins og sést er Hafþór mjög brúnn og sællegur á myndinni. Það er vonandi að Hafþór nái að vekja fram mikla tískubylgju meðal unglingspilta. Það var nú einusinni Ásgeir Sigurvinsson sem hélt á manninum undir skýrn. (Þetta er aðeins sagt um menn sem lifa á fornri frægð)

Hafþór þykir mikill smekkmaður eins og myndin ber með sér


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 10:33:10 / stos

Óheppileg tímasetning

Ekki alls fyrir löngu vorum við Árni Georgsson staddir hérna heima hjá mér. Við áttum von á tveimur stúlkum úr heimi frjálsíþróttanna í lítilsháttar erindagjörðir varðandi búningamál. Ég hafði rætt við þær í síma fyrr um daginn og þær ætluðu að koma klukkan 15:00. Þegar klukkan var tíu mínútur í þrjú sagði Árni að honum væri skelfilega mál að gera númer 2. Ég sagði við Árna að halda í sér þangað til þær væru farnar því að erindi þeirra var stutt og við vissum í raun að þær myndu ekki stoppa meira en 10-15 mín. Þetta bað ég Árna að gera vegna þess að íbúðin mín er svona í minni kanntinum og ég hafði engan áhuga á að hafa íbúðina angandi eftri Árna þegar tvær huggulegar stúlkur kæmu hingað. Og í ofanálag yrði húsráðandi pottþétt gerður ábyrgur fyrir lyktinni.
Við Árni vorum hérna í spjalli þangað til 2 mínútur í þrjú að hann segir heyrðu ég fer bara og létti á mér ég ræð ekki við þetta. Upp hófust miklar deilur sem enduðu reyndar með því að Árni fór á klósettið. Hann hafði hurðina opna meðan að athöfnin fór fram og lýsti atburðarrásinni og sannfærði mig um að þetta yrði nú í góðu hann myndi bara sturta niður jafnóðum. Þar sem klósettið hjá mér var bilað á þeim tíma þannig að það tók einar 20 mín að vera hægt að sturta niður aftur eftir að það hafði verið gert, bað ég hann að gera þetta ekki. Hann lofaði þetta bara í bak og fyrir þarna af dollunni og stappaði í mig stálinu. Síðan honum til mikillar skelfingar gat hann ekki sturtað niður nema einu sinni sökum bilunarinnar. Klósettið var því fullt af aðskotahlutum úr Árna Georgssyni og bjallan hringdi. Ég lokaði hurðinni á baðherberginu reyndi að spreyja einhverju lyktarspreyji sem var eins og að reyna að slökkva í eldgosi með slökkvitæki. Ég bað til guðs í huganum um að hvorug stelpan þyrfti  að fara á klósettið á meðan þær væru hérna nógu slæm var lyktin. Ég var bænheyrður í það skipti..
Þetta kallar maður vini sína...
Varðandi Árna Georgs er ég búinn að úthugsa hefnd en er að bíða eftir rétta tækifærinu til að framkvæma hana.  Minn tími mun koma...



Lagið er Dissent með Pearl Jam

» 11 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 15:48:25 / stos

Heiðarlegir viðskiptahættir!!

Nú eru jól og áramót liðin. Þetta er tími þar sem menn horfa um öxl og gera árið upp á einn eða annan hátt. Þetta er gert t.d. með vali á íþróttamanni ársins, veitingu fálkaorðunnar, amk hluta hennar og með því að senda vinum, kunningjum eða viðskiptavinum jólakort með þökkum fyrir árið. Þetta þekkir fólk.
Nú er svo komið að ég er viðskiptavinur margra fyrirtækja. Í sumum tilfellum tel ég mig flokkast undir að vera "stórviðskiptavinur". Þetta eru fyrirtæki á borð við Ísbúðina Hagamel þars em ég reyni að fara oftar en 52 sinnum á ári, Baunin í Háskólanum í Rvk þar sem ég hlýt að eiga met í kaffidrykkju, KFC sem er yfirburða skyndibita staður sem selur magnaða sterakjúklinga í brauði svo og Oliver.
Maður skildi ætla að þessi ágætu fyrirtæki myndu senda mér einhverja gjöf eða kveðju með þökkum fyrir viðskiptin á árinu. En það er nú bara eins og það er þ.e.a.s. engin af þessum aðilum sáu sér fært um það. Maður veit nú ekki alveg hvernig maður á að taka þessu. Er verið að segja mér að ég sé ekki velkominn í viðskipti hjá þessum fyrirtækjum lengur??

Annað sem ég vara að velta fyrir mér. Er POX dottið úr týsku. Eru menn alveg hættir að poxa? Ég fékk þessa hugmynd á dögunum þegar ég var staddur í Ísbúðinni Hagamel. Ég plataði félaga minn til þess að spyrja afgreiðslustúlkuna hvort ekki væri selt pox þar. Stelpugreyjið varð ákaflega spyrjandi á svipinn og rétti honum bara tómt ísbox. Mjög hressandi rímrulg þar í gangi.:haha:

Á American Style með Jóni Þóri Klemenssyni er hættulegt að vera. Í hvert sinn sem ég fer og fylli á kókið mitt tek ég diskinn með mér og þar af leiðandi matinn, og held á honum á meðan ég fylli á. Einhvern tíman spurði Jón Þór mig þegar ég kom til baka hvað í andskotanum ég væri að gera. Ég sagði honum að það væri algerlega sénslaust að ég myndi treysta honum fyrir matnum á meðan ég fyllti á kókið. Það er alger óþarfi að taka áhættur í þessum málum. Það gerðist nú reyndar fyrir mig á sama stað ekki alls fyrir löngu að ég var tekinn. Lokið á kryddstauknum með frönskukryddinu hafði verið losað þannig að það var laust á en ekkert bar samt á því. Ég þurfti náttlega að vera að segja félögunum einhverja sögu þegar kom að því að krydda franskarnar og gleymdi því að kanna hvort lokið væri vel hert á sem ég geri oftast. Þetta endaði með því að það enduðu nokkur grömm af kryddi ofan á litla frönskuskammtinum mínum. Það vakti ómælda ánægju nærstaddra. Hætturnar leynast víða...

Lagið er Addicted to Love með Robert Palmer

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 10:20:03 / stos

Ísköld sturta

Við félagarnir skelltum okkur í ljós í gær. Þá sjaldan að það gerist. Við fórum í Lindarsól í kópavoginum, alveg hreint prýðisbekkir, skaðbrann á bakinu.:S.. Eftir að stákarnir voru búnir að 'tana' skrokkinn á sér (tökuorð frá Gilsenegger), var næsta viðfangsefni sturta. Sturturnar þarna í Lindarsól eru mjög skemmtilega útbúnar. Milli klefanna er aðeins hátt skilrúm og því geta menn spjallað saman á meðan menn athafna sig. Nema hvað að það nægði mér ekki að spjalla. Þegar Tolli greijið var kominn í sturtuna hjá sér, stillti ég mína á ískallt, tók sturtuhausinn, prílaði upp á stól og úðaði á kvikindið. Öskur og svona. Vona að starfsfólkið hafi ekki kippt sér mjög upp við þetta. En allavegna var þetta ákaflega vel heppnað og mjög hressandi :klikk:. Því næst var að verða á undan Tolla úr sturtunni svo hann næði ekki að hefna sín á einhvern hátt, bleyta fötin hjá mér eða eitthvað slíkt. Þegar úr sturtunni var komið sá ég skóna hans Tolla. Ég rauk inn á klósett og náði í klósettpappír og tróð inn í tærnar á skónum hans. Svo beið ég lúmskur eftir Tolla. Þegar hann kom sá ég að hann var ekki búinn að gleyma sturtubrellunni, hann mun hefna sín ef ég þekki hann rétt. Það veitti mér virkilega gleði að sjá hann klæða sig í skóna sína, fyrir honum virtust þeir allt í einu vera einu númeri of litlir!!! :klikk: Mjög töff svipur sem kom á drenginn þegar hann furðaði sig á þessu. En hann var fljótur að átta sig. Hann vissi hvað var í gangi.
Nú er svo komið að maður er mjög var um sig, bíður þess hreinlega að fá ríting í bakið í það minnsta. Það er nefnilega þannig með hann Tolla að hann lætur engan eiga neitt inni hjá sér og allra síst mig, sem er reyndar mjög hressandi. Hvað drengurinn gerir hlýtur að skýrast í dag....:!:

Heitasta lagið í dag er In particular með Blonde Redhead

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 00:27:01 / stos

Heitasti jólagjafalistinn

Það er nú bara þannig að við drengirnir erum hérna upp í skóla og klukkan að nálgast miðnætti. Það er innan við sólahringur í verkefnaskil og menn gersamlega búnir að tapa glórunni, farnir að jarma og gelta og allt sem hugsanlega getur talist til taugabilunar í hausnum. Í góðmennsku okkar ákváðum við Tolli að taka okkur 10 mín pásu frá verkefnasmíðinni og útbúa jólagjafalista fyrir hann Bjarka, ástkæran bekkjarbróður, sem hann getur svo sent jólasveininum. Bjarki sagði mér einmitt í trúnaði og óspurðu máli á dögunum að hann setur enn skóinn út í glugga og trúir jafn mikið á jólasveininn og mömmu sína. Ekki þarf nú mikið til að gleðja okkur félagana og að sjálfsögðu hlógum við okkur máttlausa við gerð listans.

Jólagjafalisti Bjarka 2005

1. Samlokugrill áritað af Siggu Beinteins
2. Segulstál með útfjólubláu vasaljósi
3. Ólífrænt ígulker fyllt með marmarasultu
4. Straujárn með ósléttri botnplötu
5. Svitalyktareyðir frá SONY
6. Taugaveikluð blá epli
7. Metangas í föstu formi
8. Stirð eiturslanga með kjálkagigt
9. Hestur með gin og klaufaveiki
10. Spónalagðir ullarsokkar

Lag dagsins er Glámur og Skrámur í Sælgætislandi með Glám og Skrám


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 11:58:34 / stos

Le Penguins

Í gær sá ég alveg hreint magnaða mynd, The march of the penguins. Eftir að hafa séð þessa mynd er ég enn sannfærðari en áður um að mörgæsir séu einar mögnuðustu skepnur sem lifa á jarðríki. Göngulag þeirra er alveg fáránlega fyndið og svo þegar þær nenna ekki að labba lengur, renna þær sér bara á maganum fleiri fleiri kílómetra upp og niður brekkur. Keisaramörgæsir eru stærstar mörgæsa og verða um 120 cm háar og vega milli 20 og 30 kg. Mörgæsir sjá og heyra einstaklega vel og sjá sérstaklega vel í kafi. Það má segja um mörgæsir að þær séu mun liprari ferða sinna í sjó heldur en á landi. Þær ná allt að 35km/klst sundhraða sem er svipaður hraði og hröðustu spretthlauparar jarðarinnar hlaupa á. Mörgæsir eru kjötætur og lifa nær eingöngu á sjávarafurðum eins og fiski. Mörgæsir hafa vængi en geta ekki flogið...WHY!!!!

Hvar annarsstaðar en á e-bay finnur maður mörgæsabúning fyrir fullorðna. Það er valid pæling að fá sér eins og einn slíkann og join-a mörgæsirnar á suðurskautinu í einhvern tíma. Maður gæti nú kennt þeim eitt og annað t.d. að kveikja eld, rækta gulrætur og svo byggja snjóhús. Síðan gæti maður hreinlega tekið völdin og látið krína sig kóng. Á móti gætu þær kennt manni að eitthvað af sinni frábæru sundtækni og maður kæmi til baka til mannabyggða sem einhversskonar heimsklassamaður í sundíþróttinni.

Svona búningur gæti líka verið snilld sem þjóðhátíðarbúningur, þ.e. svo lengi sem það sé ekki sól og blíða. Maður yrði nú hrókur alls fagnaðar í slíkri græju. Svo gæti maður fengið sér sundsprett í tjörninni og leitað eftir æti að hætti mörgæsa.

En allavegna mæli ég með þessari mynd fyrir þá sem eru áhugasamir um mörgæsir og líferni þeirra.

Lag dagsins er: Glósóli með Sigurrós



» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 21:32:38 / stos

Afmælisbarn

Stórvinur minn, aflaklóinn, útgerðarmannssonurinn, hræran og teygjarinn, Jón þór klemensson námshestur í háskólanum á Akureyri á afmæli í dag. Það er rétt að benda Jóni á það á þessum tímamótum að hann er að verða gamall og lúinn og á því að passa sig í hálkunni fyrir norðan. Það er ekkert gaman við það að horfa upp á gamalmenni detta í hálkunni....:klikk:
Jón Þór tók forskot á sæluna og skellti sér ball um síðustu helgi með sálinni í sjallanum. Þar treysti ég á að hann hafi farið mikinn á dansgólfinu og tekið eins og einn lúftgítar með bindið um ennið8)..

Fyrir um einu og hálfu ári síðan var ég staddur í heimsókn hjá Jóni Þór fyrir norðan. Þar kynnti hann mig fyrir félaga sínum úr skólanum, Inga Hrannari nokkrum. Ég heyrði það fljótt að ofuráhugi þeirra beggja á enska boltanum og þá sérstaklega Liverpool bæri oft á góma í samtölum hjá þeim félögum. Kynni mín af Inga Hrannari urðu ekki frekari.
Um 3 mánuðum seinna fékk ég þessa líka prýðilegu hugmynd. Ég fór á simaskra.is og leitaði af Inga Hrannari á Akureyri. Viti menn það kom aðeins einn upp og það hlaut að vera þessi drengur. Því næst sendi ég honum sms frá Jóni Þór og hljómaði það eitthvað á þessa leið:"Sælir, ertu til í að horfa á leikinn með mér í kvöld? kveðja Jón Þór", en þetta kvöld var Liverpool einmitt að spila. Ég sendi eitt sms á dag í einhverja viku, alltaf frá Jóni. Um 10 dögum seinna átti ég samtal við Jón Þór í síma. Ég reyndi á afar lúmskan hátt að fiska upp úr honum hvort ekki væri neitt af viti að frétta. Þá fór hann að segja mér frá þessu. Hann sagði að það væri einn félagi þeirra úr skólanum sem væri alltaf að senda Inga Hrannari sms frá sér og að þeir væru svoleiðis gersamlega búnir að yfirheyra hann með tilheyrandi tilþrifum og drengurinn myndi samt alltaf neyta þessu. Hann var virkilega argur út í þennan strák þegar hann var að segja mér þetta. Þarna þurfti Steinþór Ókarsson að taka á honum stóra sínum til þess springa ekki úr hlátri. Þegar samtalið var búið og ég búinn að vorkenna Jóni alveg svakalega í símann yfir því að þessi strák óþokki væri að senda þessi sms, þurfti ég hreinlega að leggjast í gólfið og emja úr hlátri.
Nokkrum dögum seinna heyrði ég aftur í Jóni í síma og gerði þá þau mistök að minnast á þetta mál af fyrra bragði og þá var hann fljótur að átta sig á því að ég kæmi sterklega til greina sem sökudólgur. Ég hef samt alltaf neytað sök en er hér með að gefa afmælisbarninu þá gjöf að viðurkenna þetta :!::klikk:

Jón Þór tók sig til nú á dögunum og hefndi sín, rúmu ári síðar. Því verða gerð frekari skil í öðrum pistli síðar.


Lagið sem ég mæli með er lagið Girl með hinum dansk ættaða Beck Hansen.





» 8 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 16:37:03 / stos

Bloggað að nýju

Jæja þá er maður mættur aftur fyrir framan lyklaborðið. Þetta hefur legið niðri hjá mér í einhvern tíma og nálgaðist eflaust heimsmet í óvirkni blogsíðu.

En hvað sem því líður þá lenti ég í þeim óskemmtilega atburði á dögunum að gleraugun mín voru brotin. Ég og Bjarki stórvinur minn og bekkjarbróðir, vorum að læra fyrir próf í burðarþolsfræði. Við vorum búnir að drekka 15 kaffibolla og vera stanslaust yfir bókunum í eina 10 tíma. Því voru drengirnir orðnir verulega steiktir í hausnum. Við vorum í raun komnir á það stig að andlegur þroski okkar var kominn langt niður fyrir fermingu.Við vorum byrjaðir að skilmast með gardínustöngum og fleira þroskandi og uppbyggilegt. Við vorum mjög stolltir af þessum vinnubrögðum okkar þangað til gleraugun brotnuðu. Það gerðist þannig að ég stakk gardínustöng milli rifbeinanna á Bjarka sem í örvæntingu sinni greip reglustikuna sína og kastaði í áttina að mér. Afleiðingarnar voru eins og áður sagði að gleraugun brotnuðu. Strákunum varð eðlilega brugðið og lögðu frá sér glensið og settu upp alvarlegra yfirbragð.
Þetta fannst mér nú ekki vera mikið mál þar sem ég væri tryggður í bak og fyrir. Ég gekk teinréttur og svakalega stolltur inn á tryggingar mjög öruggur yfir því að þetta fengist nú bætt einn tveir og bingó. Það reyndist vera rétt hjá mér en þetta er aldrei svo einfallt hjá tryggingafélögunum. Sjálfsábyrgðin fyrir svona lagað er 17.300kr sem er yfir 95% af upphaflegu kaupverði gleraugnanna. Þannig að það var ekki neitt upp úr því að hafa og Bjarki kallinn ekki tryggður fyrir þessu. Eins og ég segi margborgar sig að vera tryggður í bak og fyrir :evil: Nú eru góð ráð dýr hjá drengnum sem er algerlega háður tækjum eins og gleraugum og linsum til að sjá hlutina í réttu ljósi. En þetta hlýtur að bjargast. Í versta falli skellir maður sér á bingó hjá blindrafélaginu eða eitthvað álíka gáfulegt og "reynir að sjá" björtu hliðarnar á málunum.:D

En yfir í annað....
efstir á svartalistanum (Ónáðin)hjá mér eru:
1. Bjarki (fyrir að brjóta gleraugun)
2. Jón Þór (fyrir að hrekkja mig svakalega)
3. Yoko Ono (fyrir að torvelda starfsemi Bítlana)
4. Ari Björnsson (fyrir ýmislegt uppsafnað)

Efst á hvítalistanum (Náðin) hjá mér:
1. Ísbúðin í Vesturbænum
2. Ísbúðin í Skeifunni
3. Kjötborðið í Nóatúni ( hljómar eins og ég sé í +150kg)
4. Nýji diskurinn með Franz Ferdinant

Lagið sem ég mæli með í dag er: Mescalin með Egó

Later....




» 8 hafa sagt sína skoðun

26.05.2005 12:13:21 / stos

Dönsum fugla dansinn!

Farfuglinn sem settist að heima hjá mér

Já það er ljóst á þessari mynd að farfuglarnir eru farnir að láta sjá sig. Þessi furðufugl villtist inn í stofu til mín á dögunum. Hann er ófleygur og varnarlaus, sjáið bara greyjið. Hann hentar ákaflega illa sem gæludýr þessi og eru búr undir fugl þennan mjög stór og dýr. Ég hef leitað víða í fuglabókum af því hvaða tegund sé um að ræða en ekki haft erindi sem erfiði. Þið sem getið frætt mig um hvaða fugl sé að ræða ættuð að gera það. Það sem ég komst að um fuglinn á meðan hann dvaldi hjá mér að hann lifir nær engöngu á Bacardi rommi og bjór finnst honum svakalega góður. Hann er mjög hljóðlátur og þægilegur í umgengni, syngur stöku sinnum "You'll never walk alone", kannski hans mesti ókostur, hver veit.

Nonni fuglagervi klæðist
ekk hafði hann fjaðrir margar
furðufugl einn þarna fæðist
úr hlátri ég mun garga
höfundur ókunnur



» 81 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4