Þessi mikla og
óvænta athygli sem ég hef fengið eftir að hafa verið hálf
snoðaður af ágætum hárskera S.Diego er farin að minna á þá
miklu athygli sem sjálfur Beckham fær í hvert skipti sem hann
gegnur út af hárgreiðslustofu. Heilu hjarðirnar af
unglingsdrengjum láta þá klippa sig eins og kappinn. Ég á þó
ekki von á að slíkt gerist í mínu tilfelli þar sem þessi
athygli er ekki komin til af góðu. Þeir Jón Þór Klemensson og
Hafþór Teodórsson hafa hreinlega keppst við að kommenta í
nafni annara um ágæti klippingarinnar.
Það er svosem ágætt að þessir drengir eyði sínum dýrmæta tíma í
að reyna að koma höggi á mig. Þessar færslur eru allar í kredit hjá
strákunum og fer ég því að eiga ansi mikið inni á þá drengi.
Kannski springur airbag-ið út hjá Hafþóri honum að óvörum, þegar
hann er að keyra Miklubrautina í mestu makindum í föstudagstraffík.
Hver veit. Svipbrigðin á drengnum yrðu hreint ólýsanleg.
Varðandi klippingar. Það eru fleiri
einstaklingar sem eiga skilið að fá mikla athygli út á hairdo-ið.
Hér er t.d.mynd af Hafþóri Teodórssyni nýkomnum úr klippingu á
Hárgreiðslustofunni Klapparstíg sem hann borgaði heilar 3500kr
fyrir. Við sjáum að Hafþór er mikill smekkmaður þegar hár er
annarsvegar. Þetta var sumarklippingin í fyrra og eins og sést er
Hafþór mjög brúnn og sællegur á myndinni. Það er vonandi að Hafþór
nái að vekja fram mikla tískubylgju meðal unglingspilta. Það var nú
einusinni Ásgeir Sigurvinsson sem hélt á manninum undir skýrn.
(Þetta er aðeins sagt um menn sem lifa á fornri frægð)

Hafþór þykir mikill smekkmaður eins og myndin ber með sér